Þú ert hér: Home
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Velkominn á vefsíðu Skriðuklausturs

Maí20

Margrétar saga komin heim

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Vigdís Finnbogadóttir með eftirgerð Margrétar söguÁ fæðingardegi Gunnars skálds, 18. maí, var opnuð lítil sýning sem er hluti af verkefni sem Árnastofnun efnir til í tilefni þess að 350 ár eru liðin frá fæðingu Árna Magnússonar. Liður í því er að sýna eftirgerðir sex valinkunnra handrita sem næst þeim stað sem Árni fékk þau frá. Margrétar saga kom í hlut Gunnarsstofnunar því að hún var send frá Skriðuklaustri til Kaupmannahafnar árið 1704. Vigdís Finnbogadóttir er "fóstra" handritsins í sýningarverkefninu og kom ásamt fríðu föruneyti frá Árnastofnun færandi hendi með eftirgerðina sem komið var fyrir í sýningarstandi í stássstofunni á Klaustri. Hægt er að sjá fleiri myndir og myndband frá móttöku Margrétar sögu á Fésbókarsíðu Skriðuklausturs.

 
Maí14

Margrétar saga kemur heim

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

AM 433 a 12moLaugardaginn 18. maí, sem er fæðingardagur Gunnars skálds og alþjóðlegur safnadagur, kemur Vigdís Finnbogadóttir færandi hendi í Skriðuklaustur með nákvæma eftirgerð af handriti Margrétar sögu sem Bessi Guðmundsson sýslumaður á Skriðuklaustri sendi Árna Magnússyni handritasafnara árið 1704. Handritið verður til sýnis í Gunnarshúsi og er sýningin hluti af verkefni Árnastofnunar, Handritin alla leið heim, sem efnt er til í tilefni 350 ára frá fæðingu Árna. Guðrún Nordal forstöðukona Árnastofnunar mun kynna verkefnið og Guðvarður Már Gunnlaugsson handritafræðingur mun segja frá handritinu og Margrétar sögu. Þá mun stúlknakórinn Liljurnar syngja fyrir gesti. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir á dagskrána sem hefst kl. 14 .

 
Maí06

Barbara komin heim

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sankti BarbaraSýningin Undir Klausturhæð hefur verið opnuð að nýju. Á henni fræðast gestir um sögu miðaldaklaustursins og fornleifarannsóknina sem stóð yfir frá 2002-2012. Munir sem fundust við uppgröftinn eru til sýnis og þar á meðal stytta af heilagri Barböru, gullhringur og frönsk reiknimynt. Minjasvæðið neðan við Gunnarshús er síðan opið og aðgengilegt með fræðsluskiltum. Í maí er opið á Skriðuklaustri alla daga kl. 12-17.

 
Apr16

Menningarsjóður stofnaður í dag

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Katrín Jakobsdóttir og Sigríður Sigmundsdóttir undirrita skipulagsskrána Skipulagsskrá Menningarsjóðs Stofnunar Gunnars Gunnarssonar var í dag, 16. apríl, staðfest á Skriðuklaustri með undirritun mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, og Sigríðar Sigmundsdóttur, varaformanns stjórnar Gunnarsstofnunar. Tilgangur menningarsjóðsins er tvíþættur: Annars vegar að renna stoðum undir starfsemi Stofnunar Gunnars Gunnarssonar á Skriðuklaustri með árlegum framlögum til hennar; hins vegar að styðja rithöfunda, listamenn, fræðimenn og námsfólk til verka er samræmast fjölþættu hlutverki stofnunarinnar. Sjóðnum er því bæði ætlað að efla menningarstarf á Skriðuklaustri og styrkja ímynd Gunnarsstofnunar sem menningarstofnunar á landsvísu. Stofnandi sjóðsins er mennta- og menningarmálaráðuneyti og leggur það sjóðnum til rúmar 43 m.kr. sem stofnfé. Ætlunin er að safna frekari framlögum til að stækka sjóðinn. Reiknað er með árlegri úthlutun og að sú fyrsta fari 18. maí 2014 þegar 125 ár verða liðin frá fæðingu skáldsins.

 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

What people are saying on...

  • Trip Advisor
  • Facebook

Upplýsingar

  • Opið

  • Hvar?

  • Verð

Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)

Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)

Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.

Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort

39 km frá Egilsstöðum

11 km frá Hallormsstað

5 km frá Hengifossi.

Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fullorðnir (safn & leiðsögn)
700 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Námsmenn 500 kr.
Eldri borgarar/Öryrkjar 350 kr.
Hópar (15-30 manns)
500 kr.
Hópar (+ 30 manns) 350 kr.
Leiðsögn um fornleifasvæði
Fullorðnir 300 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Tvöfaldur miði (safn & fornleifar) 800 kr.

 

Quotes

...og blóðborið lífið
endurfæðist æ ofan í æ,
sprettur ungt og eilífferskt
upp úr berri klöppinni
- á hverju einasta vori.

Svartfugl 1929


Maí 2013 Júní 2013
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31

Á döfinni

Engir viðburðir á næstunni