Gunnar 1907

Árin, þegar ég var ungur og saklaus af öðru en erfðasyndinni; árin, þegar atvik líðandi stundar efldu með mér lífsreynslu lausa við beiskju; árin, þegar vorkunn mín með öllu kviku var einlæg og ógagnrýn; árin, þegar Drottinn stóð mér fyrir hugskotssjónum sem vænn og virðulegur föðurafi, Kölska hins vegar á stundum svipaði til ofurlítið viðsjáls og til alls búins, en samt ekki sérlega hættulegs og raunar fremur einfalds móðurafa; árin, þegar ljósið var í senn ljós og sigursælt ljós og hægurinn hjá að særa burt allan myrkva ótta og nætur með einu stöku Faðirvori og signingu; árin, þegar mig að morgni vart óraði fyrir kvöldinu fram undan, en sat ugglaus undir vallgrónum vegg og lék mér að stráum; - þau ár eru liðin og eiga ekki afturkvæmt.
Og það eru ekki árin ein, sem eru á bak og burt. Fjöldinn allur af fólki því, sem þá var uppi, er hniginn til moldar eða horfinn út í buskann. Jafnvel endurminningin deplar gleymnu auga, líkast stjarnbliki í skýjarofi.

Fjallkirkjan - Leikur að stráum 1923

Gunnar Gunnarsson fæddist 18. maí 1889 á Valþjófsstað í Fljótsdal, næsta bæ við Skriðuklaustur. Hann var elsta barn foreldra sinna, Gunnars Helga Gunnarssonar og Katrínar Þórarinsdóttur. Fjölskyldan flutti að Ljótsstöðum í Vopnafirði vorið 1896 og þar andaðist móðir hans úr lungnabólgu 18. september 1897. Móðurmissirinn varð honum þungbær og setti mark sitt á líf hans og skrif.

Fróðleiksfýsn
Skólaganga Gunnars var farkennsla í nokkrar vikur á vetri og einn vetur í barnaskóla á Vopnafirði. Jafnframt naut hann tilsagnar og dyggrar aðstoðar prestsins, Sigurðar P. Sívertsens, á Hofi. Fróðleiksfýsn sinni svalaði hann í bókum. Hann lét sér ekki nægja að lesa fornsögurnar og íslenskan skáldskap heldur las hann einnig skandinavískar bókmenntir og allar þær norrænu þýðingar á skáldverkum sem hann kom höndum yfir, m.a. Paradísarmissi eftir Milton og Gleðileikinn guðdómlega eftir Dante.

Gunnar byrjaði ungur að yrkja kvæði og skrifa smásögur og leikrit. Þegar hann var aðeins 17 ára komu fyrstu bækur hans út, Vorljóð og Móðurminning. Ljóðakverin voru upphafið á langri og bjartri framabraut.