Þú ert hér: Home
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Velkominn á vefsíðu Skriðuklausturs

Apr16

Menningarsjóður stofnaður í dag

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Katrín Jakobsdóttir og Sigríður Sigmundsdóttir undirrita skipulagsskrána Skipulagsskrá Menningarsjóðs Stofnunar Gunnars Gunnarssonar var í dag, 16. apríl, staðfest á Skriðuklaustri með undirritun mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, og Sigríðar Sigmundsdóttur, varaformanns stjórnar Gunnarsstofnunar. Tilgangur menningarsjóðsins er tvíþættur: Annars vegar að renna stoðum undir starfsemi Stofnunar Gunnars Gunnarssonar á Skriðuklaustri með árlegum framlögum til hennar; hins vegar að styðja rithöfunda, listamenn, fræðimenn og námsfólk til verka er samræmast fjölþættu hlutverki stofnunarinnar. Sjóðnum er því bæði ætlað að efla menningarstarf á Skriðuklaustri og styrkja ímynd Gunnarsstofnunar sem menningarstofnunar á landsvísu. Stofnandi sjóðsins er mennta- og menningarmálaráðuneyti og leggur það sjóðnum til rúmar 43 m.kr. sem stofnfé. Ætlunin er að safna frekari framlögum til að stækka sjóðinn. Reiknað er með árlegri úthlutun og að sú fyrsta fari 18. maí 2014 þegar 125 ár verða liðin frá fæðingu skáldsins.

 
Mar22

Krossar, þakkir og píslarganga

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nokkrir af krossum Jóns GeirsGlæsilegar sýningar voru opnaðar með ljóðalestri Sigurðar Ingólfssonar sl. sunnudag 17. mars. Hægt er að sjá myndir frá opnuninni á http://www.facebook.com/Skriduklaustur. Í stássstofu sýnir Jón Geir Ágústsson útskorna krossa af ýmsum stærðum úr viði og steini. Í gallerí Klaustri sýnir Sigurður Ingólfsson teikningar og ljóð úr bókinni "Ég þakka".

Sýningarnar verða opnar kl. 12-17 þessa daga: sunnud. 24. mars, föstud. langa, laugard. 30. mars og annan í páskum. Opið hjá Klausturkaffi í hádegis- og kaffihlaðborð á sama tíma. Minnum einnig á árlega píslargöngu frá Valþjófsstað í Skriðuklaustur á föstudaginn langa kl. 11. Athugið að lokað er á skírdag og páskadag. En síðan verður opið a.m.k. á sunnudögum í apríl.

 
Mar15

Krossar og þakkir 17. mars

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Krossar og þakkir á SkriðuklaustriSunnudaginn 17. mars verða tvær sýningar opnaðar í Gunnarshúsi. Um er að ræða páska- og vorsýningar Gunnarsstofnunar.
Í stássstofu verður opnuð sýning á útskornum krossum úr viði og steini eftir Akureyringinn Jón Geir Ágústsson. Sú sýning ber heitið "Krossferli að fylgja þínum". Hún var fyrst sett upp á Hólum í Hjaltadal enda mikið af efnivið listamannsins sótt í Hólabyrðu og timburafganga úr Auðunarstofu. Jón Geir hefur allt frá 1982 unnið með krossformið og efniviðurinn er ólíkar viðartegundir, trjábörkur, hvaltönn, messing og sandsteinn.

Í gallerí Klaustri sýnir Sigurður Ingólfsson ljóðskáld eigin teikningar sem m.a. skreyta nýjustu ljóðabók hans. Útgáfu bókarinnar verður fagnað við sýningaropnun en bók og sýning bera sama titil: "Ég þakka".

Sýningarnar verða opnaðar kl. 14 og eru allir velkomnir. Opið verður á Skriðuklaustri kl. 12-17 sunnudagana 17. og 24. mars og hádegis- og kaffihlaðborð hjá Klausturkaffi. Einnig verður opið um páskana sem segir hér á viðburðadagatali síðunnar.

 
Feb19

Sýningar um páskana

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Kross eftir Jón Geir ÁgústssonEkki verður opið á Skriðuklaustri á Konudaginn í ár en páskasýningar verða opnaðar sunnudaginn 17. mars kl. 14. Í stásssstofu verður krossasýning Jóns Geirs Ágústssonar, Krossferli að fylgja þínum, sem vakið hefur verðskuldaða athygli frá því hún var fyrst sett upp í Auðunarstofu á Hólum. Í gallerí Klaustri sýnir Sigurður Ingólfsson teikningar sínar og ljóð úr nýrri ljóðabók sem kemur út þann 17. mars. Opnunartími Gunnarshúss og Klausturkaffis um páskana verður sem hér segir: pálmasunnudag 24. mars kl. 12-17, föstudaginn langa kl. 12-17 í kjölfar píslargöngu frá Valþjófsstað, laugardag 30. mars kl. 12-17 og annan í páskum kl. 12-17. Lokað á skírdag og páskadag.

 
Fleiri greinar...
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

What people are saying on...

  • Trip Advisor
  • Facebook

Upplýsingar

  • Opið

  • Hvar?

  • Verð

Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)

Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)

Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.

Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort

39 km frá Egilsstöðum

11 km frá Hallormsstað

5 km frá Hengifossi.

Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fullorðnir (safn & leiðsögn) 700 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Námsmenn 500 kr.
Eldri borgarar/Öryrkjar 350 kr.
Hópar (15-30 manns) 500 kr.
Hópar (+ 30 manns) 350 kr.
Leiðsögn fornleifasvæði hópar (10>)
Fullorðnir 300 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.

 

 

Quotes

     En - var ekki allt líf fórn?
 - væri því réttilega lifað.
Er það ekki það sem er gátan?

Aðventa 1937


Maí 2013 Júní 2013
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31

Á döfinni

Engir viðburðir á næstunni