Þú ert hér: Home
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Velkominn á vefsíðu Skriðuklausturs

Maí24

Undir Klausturhæð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Tilgátuteikning af Skriðuklaustur. Vala Gunnarsdóttir.Laugardaginn 26. maí verður opnuð sýning um miðaldaklaustrið að Skriðu. Á sýningunni er fjallað um sögu klaustursins og rannsókn síðustu tíu ára á minjum þess. Meðal muna á sýningunni eru gripir frá Þjóðminjasafninu sem tengjast klaustrinu, s.s. Maríulíkneski, kaleikur og patína og nisti. Þá verður frumsýnt tölvugert þrívíddarlíkan af kirkju og klausturhúsum eins og þau gætu hafa litið út fyrir 500 árum. Allir velkomnir á opnun kl. 14.

 
Maí18

Úr ættarsögu Borgarfólksins

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Gunnar um 1915Dagurinn í dag, 18. maí, er fæðingardagur Gunnars Gunnarssonar. Í ár eru liðin 123 ár frá fæðingu hans. Í ár verða einnig liðin 100 ár frá útgáfu á fyrstu skáldsögu hans, sögunni af fólkinu á Borg. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn hefur gert fyrstu útgáfu Borgarættarinnar á íslensku aðgengilega á www.baekur.is í tengslum við verkefni sem snýst um að miðla evrópskum menningararfi rafrænt. Úr ættarsögu Borgarfólksins hét þetta fjögurra binda verk í þýðingu Jakobs Jóhannessonar Smára þegar það kom út á árunum 1915-1918.
 
Maí01

Sumarið komið í dalinn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Skriðuklaustur 1. maí 2012Sumarið er komið í dalinn. Mispillinn við Gunnarshús farinn að grænka og fuglasöngur fyllir loftið. Í dag er 1. maí og það þýðir að sumaropnun er hafin. Fram í miðjan september verður opið daglega á Skriðuklaustri. Í maí er opið kl. 12-17 en síðan lengist opnunartíminn 1. júní í kl. 10-18. Sýningin Flæði eftir Lóu er í gallerí Klaustri og í stássstofu er Lagarfljótsormurinn á kreiki. Klausturkaffi býður upp á veitingar í hádegi og kaffi og um helgar er hádegis- og kaffihlaðborð.
 
Apr30

Glæsileg ljósmyndabók

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Aðventa á Fjöllum - ljósmyndabókÚt er komin hjá Sölku ljósmyndabókin Aðventa á Fjöllum eftir Sigurjón Pétursson og Þóru Hrönn Njálsdóttur. Bókin er afrakstur ljósmyndaverkefnis þeirra hjóna sem var innblásið af Aðventu Gunnars Gunnarssonar. Í bókinni eru óviðjafnanlegar vetrarmyndir af söguslóðum Aðventu og myndir úr Sæluhúsinu við Jökulsá sem Fjalla-Bensi gisti í á ferðum sínum um Mývatnsöræfin. Ljósmyndirnar voru fyrst sýndar á sýningu á Skriðuklaustri í nóvember og desember en eru nú á sýningu í Þjóðminjasafninu sem var opnuð 21. apríl sl. Salka gefur bókina út á íslensku, ensku og þýsku. Sjá nánar á heimasíðu Sölku og góða umfjöllun í Kiljunni 18. apríl. Gunnarsstofnun og Menningarráð Austurlands studdu ljósmyndaverkefnið ásamt Þjóðminjasafninu.
 
Fleiri greinar...
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

What people are saying on...

  • Trip Advisor
  • Facebook

Upplýsingar

  • Opið

  • Hvar?

  • Verð

Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)

Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)

Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.

Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort

39 km frá Egilsstöðum

11 km frá Hallormsstað

5 km frá Hengifossi.

Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fullorðnir (safn & leiðsögn) 700 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Námsmenn 500 kr.
Eldri borgarar/Öryrkjar 350 kr.
Hópar (15-30 manns) 500 kr.
Hópar (+ 30 manns) 350 kr.
Leiðsögn fornleifasvæði hópar (10>)
Fullorðnir 300 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.

 

 

Quotes

     En - var ekki allt líf fórn?
 - væri því réttilega lifað.
Er það ekki það sem er gátan?

Aðventa 1937


Maí 2013 Júní 2013
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31

Á döfinni

Engir viðburðir á næstunni