Þú ert hér: Home Fréttir Glæsileg ljósmyndabók
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)

Glæsileg ljósmyndabók

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Aðventa á Fjöllum - ljósmyndabókÚt er komin hjá Sölku ljósmyndabókin Aðventa á Fjöllum eftir Sigurjón Pétursson og Þóru Hrönn Njálsdóttur. Bókin er afrakstur ljósmyndaverkefnis þeirra hjóna sem var innblásið af Aðventu Gunnars Gunnarssonar. Í bókinni eru óviðjafnanlegar vetrarmyndir af söguslóðum Aðventu og myndir úr Sæluhúsinu við Jökulsá sem Fjalla-Bensi gisti í á ferðum sínum um Mývatnsöræfin. Ljósmyndirnar voru fyrst sýndar á sýningu á Skriðuklaustri í nóvember og desember en eru nú á sýningu í Þjóðminjasafninu sem var opnuð 21. apríl sl. Salka gefur bókina út á íslensku, ensku og þýsku. Sjá nánar á heimasíðu Sölku og góða umfjöllun í Kiljunni 18. apríl. Gunnarsstofnun og Menningarráð Austurlands studdu ljósmyndaverkefnið ásamt Þjóðminjasafninu.
 

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

Upplýsingar

  • Opið

  • Hvar?

  • Verð

Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)

Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)

Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.

Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort

39 km frá Egilsstöðum

11 km frá Hallormsstað

5 km frá Hengifossi.

Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fullorðnir (safn & leiðsögn)
700 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Námsmenn 500 kr.
Eldri borgarar/Öryrkjar 350 kr.
Hópar (15-30 manns)
500 kr.
Hópar (+ 30 manns) 350 kr.
Leiðsögn um fornleifasvæði
Fullorðnir 300 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Tvöfaldur miði (safn & fornleifar) 800 kr.

 

Quotes

Jafnvel endurminningin deplar
gleymnu auga,
    líkast stjarnbliki í skýjarofi.

Fjallkirkjan - Leikur að stráum 1923

Á döfinni

Engir viðburðir á næstunni