Þú ert hér: Home Fréttir Flæði og Lagarfljótsormurinn
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)

Flæði og Lagarfljótsormurinn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Úr verkinu FlæðiTvær sýningar verða opnaðar á Skriðuklaustri á pálmasunnudag, 1. apríl. Annars vegar er það sýningin Flæði í gallerí Klaustri sem er unnin af Ólöfu Björk Bragadóttur (Lóa) í samvinnu við Sigurð Ingólfsson ljóðskáld. Lagarfljótið og litaspil þess er uppspretta hugmynda að verkinu Flæði og þeim málverkum sem Lóa sýnir.  Hin sýningin er um Lagarfljótsorminn og var áður sett upp sumarið 2007 en gengur nú í endurnýjun lífdaga í kjölfar heimsfrægðar ormsins í netheimum. Opið verður um páskana á Skriðuklaustri á sýningar og í hádegisverð og kaffihlaðborð hjá Klausturkaffi sem hér segir: Kl. 12-17 á pálmasunnudag, föstudaginn langa, laugardaginn 7. apríl og á annan í páskum. Lokað á skírdag og páskadag. Árleg píslarganga Gunnarsstofnunar í samvinnu við prestana á Héraði verður frá Valþjófsstaðarkirkju í Skriðuklaustur á föstudaginn langa kl. 11. Snæfellsstofa verður einnig opin laugardaginn 7. apríl og á annan í páskum.
 

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

Upplýsingar

  • Opið

  • Hvar?

  • Verð

Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)

Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)

Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.

Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort

39 km frá Egilsstöðum

11 km frá Hallormsstað

5 km frá Hengifossi.

Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fullorðnir (safn & leiðsögn)
700 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Námsmenn 500 kr.
Eldri borgarar/Öryrkjar 350 kr.
Hópar (15-30 manns)
500 kr.
Hópar (+ 30 manns) 350 kr.
Leiðsögn um fornleifasvæði
Fullorðnir 300 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Tvöfaldur miði (safn & fornleifar) 800 kr.

 

Quotes

Öll erum við ekkert
nema sjórekin lík!
...Sjórekin lík
...á strönd
...lífsins

Strönd lífsins 1915


Á döfinni

Engir viðburðir á næstunni