|
Mig dreymdi draum, þegar ég var ungur. Ég gekk eftir götu og í hallinu
hinum megin við götuna lágu bók við bók og ég vissi að þessar bækur
voru mitt verk. Ég reyndi að lesa í þeim, ætlaði að læra þær í snatri,
en vaknaði af ákafanum og mundi ekki orð af því sem í þeim stóð.
Gunnar Gunnarsson var afkastamikill rithöfundur og bestu bækur hans eru mikilsháttar skáldverk sem eiga eftir að halda nafni hans á lofti um ókomna tíð. Má þar nefna verk eins og Aðventu, Fjallkirkjuna, Sælir eru einfaldir og Svartfugl. Höfundarferillinn spannar um tvo tugi skáldsagna, óteljandi smásögur, fáein leikrit, töluvert af kvæðum og ógrynni greina og fyrirlestra. Er Aðventa sú saga sem víðast hefur farið. Gunnar var tilnefndur nokkrum sinnum til Nóbelsverðlauna í bókmenntum. Næst því að hljóta þau komst hann 1955 þegar skáldbróðir hans Halldór Laxness fékk þau. |
|
Fleiri greinar...
|
| JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |
Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)
Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)
Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.
Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort
39 km frá Egilsstöðum
11 km frá Hallormsstað
5 km frá Hengifossi.
Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.
| Fullorðnir (safn & leiðsögn) |
700 kr. |
| Börn 16 ára og yngri | 0 kr. |
| Námsmenn | 500 kr. |
| Eldri borgarar/Öryrkjar | 350 kr. |
| Hópar (15-30 manns) |
500 kr. |
| Hópar (+ 30 manns) | 350 kr. |
| Leiðsögn um fornleifasvæði | |
| Fullorðnir | 300 kr. |
| Börn 16 ára og yngri | 0 kr. |
| Tvöfaldur miði (safn & fornleifar) | 800 kr. |
En - var ekki allt líf fórn?
- væri því réttilega lifað.
Er það ekki það sem er gátan?
Aðventa 1937 |