Þú ert hér: Home
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Velkominn á vefsíðu Skriðuklausturs

Nóv22

Aðventuhlaðborðin að hefjast

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Austfirskar krásirÞá er að renna upp fyrsta helgin sem Klausturkaffi býður upp á aðventuhlaðborð. Fyrsta kvöldið er laugardaginn 24. nóv. og eru enn nokkur borð laus. En síðan verða aðventuhlaðborð á föstudags- og laugardagskvöldum allt fram til 15. desember. Hafi menn ekki þegar tryggt sér borð er vissara að hafa samband við Elísabetu sem fyrst ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ). Að venju verður dekrað við gesti með heitum drykk þegar komið er í hús og síðan svigna borðin undan austfirskum krásum og alskyns góðgæti úr eldhúsinu hjá Elísabetu.

 
Nóv01

Ljósaskipti og langir skuggar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

twilightklausturÍ tilefni Daga myrkurs verður opið á Skriðuklaustri sun. 4. nóv. kl. 14-18. Bæði verður opið í Gunnarshúsi og Snæfellsstofu. Skúli Björn Gunnarsson flytur erindi um myrkur og skáldskap kl. 14 og síðan verður súkkulaðikökuhlaðborð hjá Klausturkaffi með djöflatertum og draugakökum. Kl. 16.30 hefst síðan spennandi og fjölskylduvænn ratleikur í Snæfellsstofu sem teygir sig inn í ljósaskiptin og milli húsa á Klaustri. Allir velkomnir.

 
Okt29

Vetrarbrautarmeistarinn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

F.v: Niels Sigurjónsson, Hávarður Sigurjónsson og Orri Guðjónsson.Vetrarbrautarmót í lomber var haldið um helgina á Skriðuklaustri. Á það mættu hátt í 30 manns víðsvegar að af Austurlandi og einnig úr Húnaþingi. Spilað var frá hádegi og fram undir miðnætti. Við uppgjör kom í ljós að vetrarbrautarmeistari með 248 stig var Niels Sigurjónsson frá Fáskrúðsfirði. Í öðru sæti varð Hávarður Sigurjónsson frá Blönduósi og Óttar Orri Guðjónsson Fellabæ varð þriðji. Einnig voru veitt verðlaun í liðakeppni og varð sveit Fáskrúðsfirðinga þar stigahæst með Niels og hinn 99 ára gamla Guðjón Daníelsson í broddi fylkingar. Það voru lomberklúbburinn Tótus og Gunnarsstofnun sem stóðu fyrir mótinu og styrktaraðilar voru Spilavinir og Alcoa Fjarðaál. Fleiri myndir er að finna á Snjáldurskjóðu Skriðuklausturs

Lið Fáskrúðsfirðinga sem vann liðakeppnina: Guðjón Guðjónsson, Guðjón Daníelsson, Niels Sigurjónsson, Guðmundur Hallgrímsson og Vignir HjelmAldursforsetar mótsins, Björn Hólm og Guðjón Daníelsson einbeittir við spilamennskuna.

 
Okt23

Vetrarbrautarmót í lomber

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

lomber4 logo totus og Gunnarsstofnun efna til Vetrarbrautarmóts í lomber fyrsta vetrardag, 27. október nk. Hefst spilamennskan kl. 13.00 og gert er ráð fyrir að spila fram til 23.00. Spilað verður í tveimur lotum, klassískur lomber og rauðuása-lomber. Verðlaun veitt fyrir samanlagðan árangur. Þeir sem vilja geta einnig tekið þátt í liðakeppni (3-4 í liði) og veitt verða sérstök verðlaun fyrir góðan árangur liðs. Þátttökugjald er kr. 6.500 með súpu í hádegi en 5.200 kr. m.v. kaffi og kvöldverð. Von er á Húnvetningum að norðan. Gott að fá skráningar á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Einnig er hægt að hringja í síma 471-2990 eða mæta á staðinn á laugardaginn.

 
Fleiri greinar...
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

What people are saying on...

  • Trip Advisor
  • Facebook

Upplýsingar

  • Opið

  • Hvar?

  • Verð

Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)

Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)

Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.

Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort

39 km frá Egilsstöðum

11 km frá Hallormsstað

5 km frá Hengifossi.

Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fullorðnir (safn & leiðsögn)
700 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Námsmenn 500 kr.
Eldri borgarar/Öryrkjar 350 kr.
Hópar (15-30 manns)
500 kr.
Hópar (+ 30 manns) 350 kr.
Leiðsögn um fornleifasvæði
Fullorðnir 300 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Tvöfaldur miði (safn & fornleifar) 800 kr.

 

Quotes

Jafnvel endurminningin deplar
gleymnu auga,
    líkast stjarnbliki í skýjarofi.

Fjallkirkjan - Leikur að stráum 1923

Mars 2012 Apríl 2012 Maí 2012
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30

Á döfinni

Engir viðburðir á næstunni