Þú ert hér: Home
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Velkominn á vefsíðu Skriðuklausturs

Okt23

Vetrarbrautarmót í lomber

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

lomber4 logo totus og Gunnarsstofnun efna til Vetrarbrautarmóts í lomber fyrsta vetrardag, 27. október nk. Hefst spilamennskan kl. 13.00 og gert er ráð fyrir að spila fram til 23.00. Spilað verður í tveimur lotum, klassískur lomber og rauðuása-lomber. Verðlaun veitt fyrir samanlagðan árangur. Þeir sem vilja geta einnig tekið þátt í liðakeppni (3-4 í liði) og veitt verða sérstök verðlaun fyrir góðan árangur liðs. Þátttökugjald er kr. 6.500 með súpu í hádegi en 5.200 kr. m.v. kaffi og kvöldverð. Von er á Húnvetningum að norðan. Gott að fá skráningar á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Einnig er hægt að hringja í síma 471-2990 eða mæta á staðinn á laugardaginn.

 
Sep21

Breyttur tími um helgina vegna Melaréttar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 Gunnarhús með haustliti allt um kring

Melarétt hefur verið frestað til sunnudagsins 23. sept. Sökum þess snýst auglýstur opnnartími við um helgina og opið verður á laugardag kl. 12-17 en kl. 14-17 á sunnudag. Síðasta hádegisverðarhlaðborð Klausturkaffis verður því á laugardag en kaffihlaðborð báða daga.

 
Sep18

Lomber og síðasta opnunarhelgi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haustið gengið í garð.Þá er haustið gengið í garð og ekki opið lengur upp á hvern dag á Skriðuklaustri. Um helgina verður þó opið og er það síðasta opnunarhelgi fyrir haustdvala. Opið verður á laugardag kl. 14-17 en þá er réttað í Melarétt kl. 11.30-14. Á sunnudaginn verður opið kl. 12-17. Kaffihlaðborð og hádegishlaðborð verða hjá Klausturkaffi en einnig er rétt að minna á að þetta eru síðustu forvöð til að sjá sýninguna Undir Klausturhæð, sýningu um miðaldaklaustrið. Þeir sem ekki eru þegar búnir að skoða minjasvæði eftir formlega opnun þess geta að sjálfsögðu skoðað það áfram inn í haustið þó að ekki sé opið  í Gunnarshúsi og Snæfellsstofa verður einnig opin út september kl. 10-16 virka daga og kl. 13-17 um helgar. Þá er rétt að minna á að lomber vetrarins hefst nk. föstudagskvöld á Skriðuklaustri og verður spilað frá kl. 20.00.

 
Sep13

Frímerki um Skriðuklaustur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

SkriðuklaustursfrímerkiðÍ dag er útgáfudagur frímerkis sem Íslandspóstur gefur út í tilefni 500 ára vígsluafmælis klausturkirkjunnar að Skriðu í Fljótsdal. Á frímerkinu er teikning af grunnformi klausturbygginga á Skriðuklaustri. Þá eru á fyrsta dags umslagi ljósmyndir af nokkrum merkum munum sem fundust við fornleifarannsóknina sem stóð frá 2002 til 2012. Frímerkið hefur hátt verðgildi og er fyrir 1500 gramma sendingar. Hægt er að fræðast meira um útgáfuna á vefsíðu Póstsins.

 
Fleiri greinar...
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

What people are saying on...

  • Trip Advisor
  • Facebook

Upplýsingar

  • Opið

  • Hvar?

  • Verð

Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)

Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)

Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.

Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort

39 km frá Egilsstöðum

11 km frá Hallormsstað

5 km frá Hengifossi.

Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fullorðnir (safn & leiðsögn) 700 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Námsmenn 500 kr.
Eldri borgarar/Öryrkjar 350 kr.
Hópar (15-30 manns) 500 kr.
Hópar (+ 30 manns) 350 kr.
Leiðsögn fornleifasvæði hópar (10>)
Fullorðnir 300 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.

 

 

Quotes

     En - var ekki allt líf fórn?
 - væri því réttilega lifað.
Er það ekki það sem er gátan?

Aðventa 1937


Maí 2012 Júní 2012 Júlí 2012
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Á döfinni

Engir viðburðir á næstunni