Þú ert hér: Home
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Velkominn á vefsíðu Skriðuklausturs

Maí23

Rivers to the Sea

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Rivers to the SeaJoan Perlman, sem dvelst um þessar mundir í gestaíbúðinni Klaustrinu með styrk frá The American-Scandinavian Foundation, opnaði sýningu í gallerí Klaustri laugardaginn 18. maí. Á henni getur að líta nokkrar myndir unnar með gouache á Yupo úr stærra myndverki sem hún nefnir Sanctuary. Innblástur í verk sín sækir Joan í íslenskar jökulár og hefur hún unnið með árnar síðustu tíu árin bæði í vídeóverkum og málverkum. Sýningu Joan lýkur 1. júní. Heimasíða Joan Perlman

 
Maí20

Margrétar saga komin heim

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Vigdís Finnbogadóttir með eftirgerð Margrétar söguÁ fæðingardegi Gunnars skálds, 18. maí, var opnuð lítil sýning sem er hluti af verkefni sem Árnastofnun efnir til í tilefni þess að 350 ár eru liðin frá fæðingu Árna Magnússonar. Liður í því er að sýna eftirgerðir sex valinkunnra handrita sem næst þeim stað sem Árni fékk þau frá. Margrétar saga kom í hlut Gunnarsstofnunar því að hún var send frá Skriðuklaustri til Kaupmannahafnar árið 1704. Vigdís Finnbogadóttir er "fóstra" handritsins í sýningarverkefninu og kom ásamt fríðu föruneyti frá Árnastofnun færandi hendi með eftirgerðina sem komið var fyrir í sýningarstandi í stássstofunni á Klaustri. Hægt er að sjá fleiri myndir og myndband frá móttöku Margrétar sögu á Fésbókarsíðu Skriðuklausturs.

 
Maí14

Margrétar saga kemur heim

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

AM 433 a 12moLaugardaginn 18. maí, sem er fæðingardagur Gunnars skálds og alþjóðlegur safnadagur, kemur Vigdís Finnbogadóttir færandi hendi í Skriðuklaustur með nákvæma eftirgerð af handriti Margrétar sögu sem Bessi Guðmundsson sýslumaður á Skriðuklaustri sendi Árna Magnússyni handritasafnara árið 1704. Handritið verður til sýnis í Gunnarshúsi og er sýningin hluti af verkefni Árnastofnunar, Handritin alla leið heim, sem efnt er til í tilefni 350 ára frá fæðingu Árna. Guðrún Nordal forstöðukona Árnastofnunar mun kynna verkefnið og Guðvarður Már Gunnlaugsson handritafræðingur mun segja frá handritinu og Margrétar sögu. Þá mun stúlknakórinn Liljurnar syngja fyrir gesti. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir á dagskrána sem hefst kl. 14 .

 
Maí06

Barbara komin heim

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sankti BarbaraSýningin Undir Klausturhæð hefur verið opnuð að nýju. Á henni fræðast gestir um sögu miðaldaklaustursins og fornleifarannsóknina sem stóð yfir frá 2002-2012. Munir sem fundust við uppgröftinn eru til sýnis og þar á meðal stytta af heilagri Barböru, gullhringur og frönsk reiknimynt. Minjasvæðið neðan við Gunnarshús er síðan opið og aðgengilegt með fræðsluskiltum. Í maí er opið á Skriðuklaustri alla daga kl. 12-17.

 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

What people are saying on...

  • Trip Advisor
  • Facebook

Upplýsingar

  • Opið

  • Hvar?

  • Verð

Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)

Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)

Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.

Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort

39 km frá Egilsstöðum

11 km frá Hallormsstað

5 km frá Hengifossi.

Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fullorðnir (safn & leiðsögn) 700 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Námsmenn 500 kr.
Eldri borgarar/Öryrkjar 350 kr.
Hópar (15-30 manns) 500 kr.
Hópar (+ 30 manns) 350 kr.
Leiðsögn fornleifasvæði hópar (10>)
Fullorðnir 300 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.

 

 

Quotes

Öll erum við ekkert
nema sjórekin lík!
...Sjórekin lík
...á strönd
...lífsins

Strönd lífsins 1915


Apríl 2012 Maí 2012 Júní 2012
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

Á döfinni

Engir viðburðir á næstunni