Þú ert hér: Home
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Velkominn á vefsíðu Skriðuklausturs

Des13

Aðventa lesin á sunnudaginn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Matthias Scherwenikas og Gunnar Snorri sendiherraNæsta sunnudag,  þriðja sunnudag í aðventu 16. desember, verður Aðventa lesin samtímis á tveimur stöðum. Menningarmiðstöð Þingeyinga stendur fyrir upplestri á Grenjaðarstað og hjá Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri í Fljótsdal mun Ævar Kjartansson lesa söguna. Lesturinn hefst á báðum stöðum kl. 14 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis.

Sunnudaginn 9. desember var Aðventa Gunnars m.a. lesin upp í samkomusal norrænu sendiráðanna í Berlín. Þar mættu 112 manns til að hlýða á lesturinn en líkt og í fyrra var það þýski leikarinn Matthias Scherwenikas sem las söguna frá upphafi til enda.

 
Des06

Aðventa lesin víða næstu helgar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Wolfgang Felten 1951– Reykjavík og Berlín næsta sunnudag
 Aðventa, sagan um Fjalla-Bensa og svaðilfarir hans á fjöllum vikurnar fyrir jól, sem Gunnar Gunnarsson skrifaði árið 1936 hefur unnið sér sess sem jólasaga hérlendis hin síðari ár. Á hverju ári er hún lesin í Útvarpinu síðustu daga fyrir jól og lestri hennar lokið síðdegis á aðfangadag. Á síðustu árum hefur sá siður jafnframt skotið rótum að lesa skáldsöguna upphátt fyrir gesti víða um land og einnig erlendis.
Í ár dreifist upplestur á Aðventu á tvær helgar á þeim stöðum sem vitað er um. Sunnudaginn 9. desember mun Hjörtur Pálsson lesa söguna í Gunnarshúsi í Reykjavík að Dyngjuvegi 8. Rithöfundasamband Íslands stendur fyrir þeim lestri. Aðgangur er ókeypis og heitt á könnunni en lesturinn hefst kl. 13.30. Sama dag verður Aðventa lesin á þýsku í samkomusal norrænu sendiráðanna í Berlín kl. 14.00. Þar mun þýski leikarinn Matthias Scherwenikas lesa söguna og verður boðið upp á íslenskt bakkelsi í hléi. Sendiráð Íslands og Gunnarsstofnun standa fyrir þeim upplestri en Aðventa kom fyrst út á þýsku hjá forlaginu Reclam árið 1936 og er vel þekkt meðal þýskra unnenda íslenskra bókmennta.
 
Á þriðja sunnudegi í aðventu, hinn 16. desember, verður Aðventa lesin samtímis á tveimur stöðum. Menningarmiðstöð Þingeyinga stendur fyrir upplestri á Grenjaðarstað og hjá Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri í Fljótsdal mun Ævar Kjartansson lesa söguna. Lesturinn hefst á báðum stöðum kl. 14 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

 
Nóv26

Rithöfundar og Grýlugleði

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Skáldin í rithöfundalestinni 2012Um næstu helgi verður mikið um að vera á Skriðuklaustri. Laugard. 1. des. brunar rithöfundalestin árvissa í hlað. Kristín Steinsdóttir les úr Bjarna-Dísu, Kristín Ómarsdóttir les úr Millu, Steinunn Kristjánsdóttir les úr Sögunni um klaustrið á Skriðu, Eiríkur Örn Norðdahl les úr Illsku og Einar Már úr Íslenskum kóngum. Einnig verður kynnt bókin Sonur þinn er á lífi úr Útkallsseríu Óttars Sveinssonar. Rithöfundalesturinn hefst kl. 14.00 og kostar 1.000 kr. inn, kaffi og kökur innifaldar. Bækur verða seldar á staðnum og hægt að verða sér úti um áritun. Rithöfundarnir munu einnig lesa á Vopnafirði á föstudagskvöld, Seyðisfirði á laugardagskvöld og í Neskaupstað á sunnudag. Menningarráð Austurlands og fleiri aðilar styrkja rithöfundalestina að þessu sinni.sponsors

 

Hin árlega Grýlugleði verður síðan sunnud. 2. des. kl. 14.00. Þar verður grín og glens um Grýlu og hyski hennar og vonandi láta þau gömlu hjónin gesti í friði þetta árið. Ókeypis aðgangur. Jólakökuhlaðborð hjá Klausturkaffi eftir gleðina.

 
Nóv22

Aðventuhlaðborðin að hefjast

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Austfirskar krásirÞá er að renna upp fyrsta helgin sem Klausturkaffi býður upp á aðventuhlaðborð. Fyrsta kvöldið er laugardaginn 24. nóv. og eru enn nokkur borð laus. En síðan verða aðventuhlaðborð á föstudags- og laugardagskvöldum allt fram til 15. desember. Hafi menn ekki þegar tryggt sér borð er vissara að hafa samband við Elísabetu sem fyrst ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ). Að venju verður dekrað við gesti með heitum drykk þegar komið er í hús og síðan svigna borðin undan austfirskum krásum og alskyns góðgæti úr eldhúsinu hjá Elísabetu.

 
Fleiri greinar...
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

What people are saying on...

  • Trip Advisor
  • Facebook

Upplýsingar

  • Opið

  • Hvar?

  • Verð

Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)

Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)

Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.

Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort

39 km frá Egilsstöðum

11 km frá Hallormsstað

5 km frá Hengifossi.

Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fullorðnir (safn & leiðsögn)
700 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Námsmenn 500 kr.
Eldri borgarar/Öryrkjar 350 kr.
Hópar (15-30 manns)
500 kr.
Hópar (+ 30 manns) 350 kr.
Leiðsögn um fornleifasvæði
Fullorðnir 300 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Tvöfaldur miði (safn & fornleifar) 800 kr.

 

Quotes

Jafnvel endurminningin deplar
gleymnu auga,
    líkast stjarnbliki í skýjarofi.

Fjallkirkjan - Leikur að stráum 1923

Mars 2012 Apríl 2012 Maí 2012
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30

Á döfinni

Engir viðburðir á næstunni