Þú ert hér: Home
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Velkominn á vefsíðu Skriðuklausturs

Jún13

50 litríkir regndropar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

kristinrutOpnuð hefur verið ný sýning í gallerí Klaustri. Það er Kristín Rut Eyjólfsdóttir frá Egilsstöðum sem sýnir þar 50 litlar myndir. Þeim er fylgt úr hlaði með þessu ljóði:

Litirnir streyma yfir hvítan strigann / fullir af lífi og vekja hann úr dvala / líkt og vorregnið sem kemur með sunnanvindinum / leysir land og lýð úr fjötrum vetrar.

Sýningin er opin alla daga kl. 10-18 og stendur til 19. júní.

 
Jún04

Sumarið er komið í dalinn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Minjasvæði / Heritage site júní 2013Sumarið er svo sannarlega komið í Fljótsdalnum. Sól og sunnanvindur upp á hvern dag. Lækir og ár hafa vart undan að bera bráðinn snjó úr fjöllum. Á Skriðuklaustri er nú opið alla daga kl. 10-18. Minjasvæðið er orðið grænt og fyrsti sláttur á flötinni sunnan við Gunnarshús verður í vikunni. Útiborðin verða klár á suðurveröndinni fyrir helgi.

 
Maí23

Rivers to the Sea

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Rivers to the SeaJoan Perlman, sem dvelst um þessar mundir í gestaíbúðinni Klaustrinu með styrk frá The American-Scandinavian Foundation, opnaði sýningu í gallerí Klaustri laugardaginn 18. maí. Á henni getur að líta nokkrar myndir unnar með gouache á Yupo úr stærra myndverki sem hún nefnir Sanctuary. Innblástur í verk sín sækir Joan í íslenskar jökulár og hefur hún unnið með árnar síðustu tíu árin bæði í vídeóverkum og málverkum. Sýningu Joan lýkur 1. júní. Heimasíða Joan Perlman

 
Maí20

Margrétar saga komin heim

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Vigdís Finnbogadóttir með eftirgerð Margrétar söguÁ fæðingardegi Gunnars skálds, 18. maí, var opnuð lítil sýning sem er hluti af verkefni sem Árnastofnun efnir til í tilefni þess að 350 ár eru liðin frá fæðingu Árna Magnússonar. Liður í því er að sýna eftirgerðir sex valinkunnra handrita sem næst þeim stað sem Árni fékk þau frá. Margrétar saga kom í hlut Gunnarsstofnunar því að hún var send frá Skriðuklaustri til Kaupmannahafnar árið 1704. Vigdís Finnbogadóttir er "fóstra" handritsins í sýningarverkefninu og kom ásamt fríðu föruneyti frá Árnastofnun færandi hendi með eftirgerðina sem komið var fyrir í sýningarstandi í stássstofunni á Klaustri. Hægt er að sjá fleiri myndir og myndband frá móttöku Margrétar sögu á Fésbókarsíðu Skriðuklausturs.

 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

What people are saying on...

  • Trip Advisor
  • Facebook

Upplýsingar

  • Opið

  • Hvar?

  • Verð

Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)

Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)

Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.

Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort

39 km frá Egilsstöðum

11 km frá Hallormsstað

5 km frá Hengifossi.

Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fullorðnir (safn & leiðsögn) 700 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.
Námsmenn 500 kr.
Eldri borgarar/Öryrkjar 350 kr.
Hópar (15-30 manns) 500 kr.
Hópar (+ 30 manns) 350 kr.
Leiðsögn fornleifasvæði hópar (10>)
Fullorðnir 300 kr.
Börn 16 ára og yngri 0 kr.

 

 

Quotes

Innra með sér var hann
frá sér numinn af unaði,
fann til þess í hverri taug
     og blóðdropa,
að hann var einkasonur
þessara hugumstóru fjalla.

Saga Borgarættarinnar 1929


Mars 2012 Apríl 2012 Maí 2012
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30

Á döfinni