|
Skipulagsskrá Stofnunar Gunnars Gunnarssonar á Skriðuklaustri
1. gr.
Stofnun Gunnars Gunnarssonar er sjálfseignarstofnun með sérstaka stjórn og starfar á grundvelli laga nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Heimili og varnarþing stofnunarinnar er Skriðuklaustur í Fljótsdal. Stofnunin ber ein ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum.2. gr.
Stofnun Gunnars Gunnarssonar er menningarstofnun sem starfar í anda gjafabréfs Gunnars Gunnarssonar skálds og Franziscu Gunnarsson eiginkonu hans, dags. 11. desember 1948. Með gjafabréfinu var jörðin Skriðuklaustur í Fljótsdal gefin íslenska ríkinu til ævarandi eignar og skal hún hagnýtt á þann hátt að til menningarauka horfi.
Stofnun Gunnars Gunnarssonar hefur Gunnarshús að Skriðuklaustri ásamt tilheyrandi húsum og landi til umráða fyrir starfsemi sína samkvæmt sérstökum samningi við menntamálaráðuneyti. Í þeim samningi skulu tilgreind skilyrði fyrir afnotum Stofnunar Gunnars Gunnarssonar af eignum gjafabréfsins. 3. gr.
Stofnendur Stofnunar Gunnars Gunnarssonar eru: menntamálaráðuneyti, Háskóli Íslands, Rithöfundasamband Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Þróunarfélag Austurlands. 4. gr.
Stjórn Stofnunar Gunnars Gunnarssonar er skipuð fimm manns til þriggja ára í senn og skulu varamenn tilnefndir með sama hætti. Af þessum fimm fulltrúum skipar menntamálaráðherra einn fulltrúa og skal hann vera fulltrúi afkomenda Gunnars Gunnarssonar, Háskóli Íslands skipar einn fulltrúa, Rithöfundasamband Íslands skipar einn fulltrúa, Stofnun Árna Magnússonar skipar einn fulltrúa og Þróunarfélag Austurlands skipar einn fulltrúa. Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi hvers árs. 5. gr.
Stjórn Stofnunar Gunnars Gunnarssonar ber að vinna að markmiðum stofnunarinnar samkvæmt sérstökum samningi við menntamálaráðuneyti. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum stofnunarinnar og kemur fram fyrir hennar hönd gagnvart þeim sem veita henni fjárhagslegan stuðning. Stjórnin ákveður meginþætti í stefnu og starfstilhögun stofnunarinnar, í samræmi við skipulagsskrá, og getur sett sér og stofnuninni starfsreglur. 6. gr.
Stjórn Stofnunar Gunnars Gunnarssonar ræður forstöðumann og ákveður laun hans og starfskjör. Forstöðumaður annast daglegan rekstur og ber ábyrgð gagnvart stjórn stofnunarinnar. Hann vinnur samkvæmt ráðningarsamningi og starfslýsingu, skipulagsskrá stofnunarinnar og fyrirmælum stjórnar. Forstöðumaður fer með fjármál í umboði stjórnar, undirbýr fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár sem skal lögð fyrir stjórn í ársbyrjun ár hvert, vinnur að fjáröflun og sér til þess að reikningar stofnunarinnar séu færðir samkvæmt gildandi reglum og að ársreikningar séu gerðir. Jafnframt annast hann starfsmannaráðningar í samráði við stjórn. 7. gr.
Tekjur Stofnunar Gunnars Gunnarssonar auk vaxta af stofnframlagi eru árleg framlög frá ríkinu samkvæmt samningi við menntamálaráðuneytið, tekjur af þjónustu auk frjálsra framlaga frá einstaklingum, fyrirtækjum, sveitarfélögum og samtökum og annars aflafjár. 8. gr.
Til þess að stofnunin geti náð megintilgangi sínum er stjórninni heimilt fyrir hönd stofnunarinnar að eiga samstarf við aðra aðila, þ.m.t. stofnaðila og gerast í því skyni aðili að samstarfssamningi um lengri eða skemmri tíma. 9. gr.
Reikningsár Stofnunar Gunnars Gunnarssonar er frá 1. janúar til 31. desember ár hvert. Forstöðumaður skal í fyrstu viku marsmánaðar leggja eftirfarandi gögn fyrir stjórn stofnunarinnar til afgreiðslu:
Reikningar Stofnunar Gunnars Gunnarssonar skulu endurskoðaðir eða hljóta könnunaráritun af löggiltum endurskoðanda, sem skipaður er af stjórn í eitt ár í senn. Formaður stjórnar skal sjá til þess að endurskoðaður ársreikningur berist Ríkisendurskoðun eigi síðar en 30. júní ár hvert fyrir næstliðið ár ásamt skýrslu um hvernig fé stofnunarinnar hefur verið ráðstafað á því ári. Um reikningshald fer að lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. 10. gr.
Leita skal staðfestingar sýslumannsins á Sauðárkróki á skipulagsskrá þessari. Skipulagsskránni verður aðeins breytt með samþykki allra stjórnarmanna og skulu þær hljóta staðfestingu sýslumannsins á Sauðárkróki. Skriðuklaustri, 18. maí 2007.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir F.h. menntamálaráðuneytis Jón Atli Benediktsson Pétur Gunnarsson Vésteinn Ólason
F.h. Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum Stefán Stefánsson F.h. Þróunarfélags Austurlands Staðfest f.h. afkomenda Gunnars Gunnarssonar. Gunnar Gunnarsson Gunnar Björn Gunnarsson Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði
og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 2007. |
Opið daglega kl. 10-18 (júní-ágúst)
Opið daglega kl. 12-17 (maí og 1/2 sept.)
Að vetrarlagi er opnunartími óreglulegur. Leitið upplýsinga.
Skriðuklaustur er í Fljótsdal fyrir botni Lagarfljóts. Kort
39 km frá Egilsstöðum
11 km frá Hallormsstað
5 km frá Hengifossi.
Á Skriðuklaustri er einnig Snæfellsstofa Vatnajökulsþjóðgarðs.
| Fullorðnir (safn & leiðsögn) |
700 kr. |
| Börn 16 ára og yngri | 0 kr. |
| Námsmenn | 500 kr. |
| Eldri borgarar/Öryrkjar | 350 kr. |
| Hópar (15-30 manns) |
500 kr. |
| Hópar (+ 30 manns) | 350 kr. |
| Leiðsögn um fornleifasvæði | |
| Fullorðnir | 300 kr. |
| Börn 16 ára og yngri | 0 kr. |
| Tvöfaldur miði (safn & fornleifar) | 800 kr. |
Jafnvel endurminningin deplar
gleymnu auga,
líkast stjarnbliki í skýjarofi.
Fjallkirkjan - Leikur að stráum 1923 |