Teikningin sem þeir Gunnar og Jóhann Fr. Kristjánsson gerðu af fyrirhuguðu íbúðarhúsi á Skriðuklaustri fannst í gögnum skáldsins á handritadeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Hún minnir bæði á Fredsholm, sem Gunnar og Franzisca seldu þegar þau fluttu heim, og Húsmæðraskólann á Hallormsstað sem Jóhann teiknaði.
Í bréfum kemur fram að byggingin átti upphaflega að vera 10 x 20 m að grunnfleti en minnkaði vegna kostnaðar niður í 9 x 18 m. Hugmyndir Fritz Högers um byggingu á Skriðuklaustri voru í allt öðrum stíl. Í bréfum Gunnars til Guttorms Pálssonar skógarvarðar á Hallormsstað, frænda hans og umboðsmanns við Skriðuklausturskaupin, kemur fram að þeim Jóhanni hafi gengið illa að koma Höger í skilning um hvaða byggingarefni og vinnulag væri hægt að nota við slíkar stórbyggingar á Íslandi. En allt tókst það að lokum og útkoman varð glæsileg.
|
|







