Þú ert hér: Home
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Bienvenue à Skriðuklaustur

Auo15

Skriðuklausturshátíð um helgina

Envoyer Imprimer PDF
There are no translations available.

SEEDS sjálfboðaliðar við frágang á minjasvæðinuUm næstu helgi, 18.-19. ágúst, verður Skriðuklausturshátíð í Fljótsdal. Tilefnið er ærið því að lokið er tíu ára rannsókn á rústum hins forna Ágústínusarklausturs sem þar stóð á 16. öld. Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mun opna fullfrágengið minjasvæði á þessum tímamótum sem markast einnig af þeim 500 árum sem liðin eru frá því Stefán Jónsson Skálholtsbiskup vígði klausturkirkjuna. Guðsþjónusta verður í rústum kirkjunnar og þar mun biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, prédika. Um helgina kemur einnig út bók um rannsóknina á klaustrinu að Skriðu eftir dr. Steinunni Kristjánsdóttur og haldið verður opið málþing í Végarði í Fljótsdal.

Uppgreftri Ágústínusarklausturs á Skriðuklaustri í Fljótsdal sem starfrækt var 1493-1554 lauk síðasta sumar. Um er að ræða einhverja umfangsmestu fornleifarannsókn síðari ára en hún hófst árið 2002 með framlögum Kristnihátíðarsjóðs. Í ár hefur verið unnið að frágangi minjasvæðisins og sunnudaginn 19. ágúst nk. verður það opnað formlega af mennta- og menningarmálaráðherra. Í samráði við Fornleifavernd ríkisins hafa grunnform klausturbygginga og kirkju verið hlaðin upp og búið er að tyrfa veggi og umhverfi þannig að hægt er að feta í fótspor þeirra sem dvöldu í klaustrinu á 16. öld. Þá hefur verið komið fyrir útsýnispalli fyrir ofan svæðið með fræðsluskiltum.

Dagskrá hátíðarinnar er sem hér segir. Laugardaginn 18. ágúst verður opið málþing í Végarði kl. 13-16 þar sem dr. Steinunn Kristjánsdóttir, sem stýrt hefur rannsókninni frá upphafi, mun flytja erindi ásamt dr. Hjalta Hugasyni, dr. Vilborgu Auði Ísleifsdóttur, Hrönn Konráðsdóttur og Margréti Gestsdóttur. Málþingið er öllum opið og munu forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins og þjóðminjavörður sitja í pallborði með fyrirlesurum. Hér er hægt að sækja dagskrá málþingsins

 

Smiðir að ljúka smíði á útsýnispalli ofan minjasvæðisSunnudaginn 19. ágúst, sem jafnframt er Fljótsdalsdagur í Héraðshátíðinni Ormsteiti, hefst dagskrá með morgungöngu kl. 10 frá Víðivöllum í Skriðuklaustur í minningu Sesselju Þorsteinsdóttur sem gaf jörðina Skriðu undir klaustur. Eftir hádegi, kl. 13.30 verður síðan hátíðardagskrá á Skriðuklaustri þar sem mennta- og menningarmálaráðherra mun opna minjasvæðið og síðan verður guðsþjónusta við rústirnar og mun biskup Íslands prédika.

Hefðbundin dagskrá Fljótsdalsdags tekur síðan við hjá Gunnarshúsi með tónleikum Ásgeirs Trausta og Þristarleikum þar sem m.a. er keppt í rababarakasti og fjárdrætti.

Klausturkaffi býður að sjálfsögðu upp á hádegis- og kaffihlaðborð alla helgina og við minnum einnig á sýninguna Undir Klausturhæð í Gunnarshúsi um uppgröftinn, sem og Endurfundasýninguna á Minjasafni Austurlands þar sem sjá má marga gripi sem fundust við rannsóknina.

 
Auo02

Fjöllin og Fljótið í galleríi

Envoyer Imprimer PDF
There are no translations available.

Þórunn og Pétur við opnunOpnuð hefur verið í gallerí Klaustri sýningin Fjöllin og Fljótið. Það eru hjónin Þórunn Víðisdóttir og Pétur Sörensson sem sýna þar olíumálverk og ljósmyndir þar sem austfirsk náttúra er meginviðfangsefnið. Á sýningunni eru 19 málverk og 8 svarthvítar ljósmyndir. Sýningin stendur til 29. ágúst og er opin á opnunartíma Gunnarhús, kl. 10-18 alla daga.

 
Juil17

Framkvæmdir á minjasvæði

Envoyer Imprimer PDF
There are no translations available.

Frágangur minjasvæðisÞó að uppgreftri klausturrústa hafi lokið síðasta sumar er mikið líf á minjasvæðinu í júlí. Fimm fornleifafræðingar eru að grafa lítil svæði sem urðu eftir eða þarf að grafa vegna frágangs svæðisins. Síðan eru sjálfboðaliðar frá SEEDS mættir til að koma minjasvæðinu í fagurt horf fyrir Skriðuklausturshátíðina sem verður haldin 19. ágúst nk. Þá verða liðin 500 ár frá vígslu klausturkirkjunnar og við það tækifæri verður minjasvæðið opnað formlega fullfrágengið. Vinna er hafin við smíði útsýnispalls á klettinn ofan við rústirnar en þaðan er góð sýn yfir grunnform hinna fornu klausturbygginga sem hefur verið hlaðið upp á grunni gömlu veggjanna.

 
Juil04

Innsetning á Safnadaginn

Envoyer Imprimer PDF
There are no translations available.

Gunnarshús 3. júlí. Ljósmynd Katriina RanneSýningu Soffíu Sæmundsdóttur, Dalverpi, minningar og fundnir hlutir, lýkur laugardaginn 7. júlí í gallerí Klaustri á Skriðuklaustri. Daginn eftir, sunnudaginn 8. júlí verður Íslenski safnadagurinn í hávegum hafður og ókeypis inn á safnið og í leiðsögn um fornleifasvæðið. Þá mun danska listakonan Litten Nyström einnig opna nýja sýningu í gallerí Klaustri undir heitinu Árangur (Landvinding/Achievement). Sú sýning er innsetning unnin sérstaklega með tilliti til staðarins og mun Litten vinna bæði úti og inni á sunnudaginn frá kl. 14 og fram eftir degi við að skapa innsetninguna. Áhugasamir eru því hvattir til að mæta og fylgjast með sýningunni verða til. Litten Nyström er dönsk en hefur búið á Seyðisfirði síðasta árið. Hún hefur haldið einkasýningar í Danmörku, Þýskalandi og á Íslandi.

 
Plus d'articles...
Page 6 sur 15

Our friends

  • Lagarfljótsormurinn
  • Austfirskar krásir
  • Vatnajökulsþjóðgarður
  • Sögueyjan Ísland
  • Saga Trails in Iceland
Previous Next

What people are saying on...

  • Trip Advisor
  • Facebook

Détails

  • Ouverture

  • Tarif

Ouvert tous les jours de 10 h à 18 h (de juin à août)

Ouvert tous les jours de 12 à 17 heures (de mai à mi-septembre)

En hiver les horaires d’ouverture sont variables, merci de vous renseigner.

Skriðuklaustur se situe dans la région de Fljótsdalur à la source de Lagarfljót. Carte

A 39 km d’Egilsstadir

A 11 km de Hallormsstadur

A 5 km de la chute Hengifoss.

A Skriduklaustur se trouve également le centre d’accueil du parc national du Vatnajökull.

Adultes (musée et visite guidée) 700 kr.
Enfants  jusqu’à 16 ans gratuit
Etudiants 500 kr.
Personnes âgées/ handicapés 350 kr.
Groupes de 15 à 30 personnes 500 kr.
Groupes de plus de 30 personnes 350 kr.

Visite commentée du chantier de fouilles archéologiques

Adultes 300 kr.
Enfants jusqu’à 16 ans gratuit
Billet double (musée et chantier de fouilles archéologiques)
800 kr.

 

Citations

There are no translations available.

Öll erum við ekkert
nema sjórekin lík!
...Sjórekin lík
...á strönd
...lífsins

Strönd lífsins 1915


Mai 2013 Juin 2013
Di Lu Ma Me Je Ve Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31

A la Une

Engir viðburðir á næstunni