Þú ert hér: Home News 2011 Rithöfundar og Grýlugleði um helgina
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Leit

Skriðuklaustur

Icelandic(IS)Deutsch (DE-CH-AT)French (Fr)English (United Kingdom)

Rithöfundar og Grýlugleði um helgina

Print
There are no translations available.

Nýja litabókinÁrviss rithöfundalest fer um Austurland um helgina 26. og 27. nóvember. Á ferð verða fjórir höfundar frá Forlaginu með nýjustu verk sín. Hallgrímur Helgason segir frá Konunni við 1000 gráður, Jón Yngvi Jóhannsson les úr ævisögu Gunnars Gunnarssonar sem heitir Landnám, Ragna Sigurðardóttir fræðir áheyrendur um sögu sína um Bónusstelpuna og Vigdís Grímsdóttir heldur á vit töfranna og les úr skáldsögunni Trúir þú á töfra? Lesið verður á Skriðuklaustri kl. 14.00 laugardaginn 26. nóv. Aðgangur 1000 kr. og 500 fyrir eldri borgara. Kaffi og smákökur innifaldar.



Hin árvissa Grýlugleði Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri verður haldin sunnudaginn 27. nóvember, á fyrsta sunnudegi í aðventu, kl. 14.00. Að venju munu gaulálfar og sagnálfar ráða ríkjum á skemmtuninni og fræða gesti um ægivald og ógnir Grýlu og hyskis hennar. Hjónakornin halda sig vonandi heima í Brandsöxlinni á meðan á gleðinni stendur. Kynnt verður glóðvolg útgáfa litabókar um Grýlu með kvæðabrotum austfirskra skálda fyrri alda og verðlaunateikningum austfirskra grunnskólabarna í 6. og 7. bekk. Allir velkomnir og ókeypis inn. Jólakökuhlaðborð hjá Klausturkaffi eftir skemmtun.

 

Info

  • Open

  • Location

  • Fee

June - August: Open daily 10am - 6pm

May - 1/2 September: Open daily 12am - 5pm

October - April: Open occasionally. Ask for information.

Skriðuklaustur is in Fljótsdalur valley at the upper end of Lagarfljót lake - right by the highland road to Snæfell and Kárahnjúkar. Map

39 km from Egilsstaðir

11 km from Hallormsstaður forest

5 km from Hengifoss waterfall

A Visitor's centre for Vatnajökull National Park is also at Skriðuklaustur.

 
Adults (museum & guide) 700 kr
Children under the age of 16 0 kr
Students 500 kr
Senior citizens / disabled 350 kr
Groups (15-30) 500 kr
Groups (30+) 350 kr
Guided tour of the archsite for groups (10>)
Adults 300 kr
Children under the age of 16 0 kr

Quotes

...life renews itself,
springing young and fresh
and blood-warm from the
sterile rocks. Every summer.

The Black Cliffs 1929


Upcoming events

Engir viðburðir á næstunni