Þá er að renna upp fyrsta helgin sem Klausturkaffi býður upp á aðventuhlaðborð. Fyrsta kvöldið er laugardaginn 24. nóv. og eru enn nokkur borð laus. En síðan verða aðventuhlaðborð á föstudags- og laugardagskvöldum allt fram til 15. desember. Hafi menn ekki þegar tryggt sér borð er vissara að hafa samband við Elísabetu sem fyrst (
Diese E-Mail-Adresse ist gegen Spambots geschützt! JavaScript muss aktiviert werden, damit sie angezeigt werden kann.
). Að venju verður dekrað við gesti með heitum drykk þegar komið er í hús og síðan svigna borðin undan austfirskum krásum og alskyns góðgæti úr eldhúsinu hjá Elísabetu.
























